Fallegar myndir heilla mig. Á vef CNN sá ég þessar sérkennilegu myndir sem „götulistamaðurinn“ Sean Yoro frá Hawaii gerði hér á landi.
Listaverkið nefnist „A'o 'Ana“ eða Aðvörun (e. Warning).
Myndin er tekin við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þarna er eins og að kona rétt setji andlit sitt upp úr vatnsborðinu.
Auðvitað er þetta tilbúningur en engu að síður heillandi í umhverfi sínu.
Mér skilst að listamaðurinn máli mynd af konunni og komi fyrir víða um heim og taki myndir síðan myndir af listaverkinu í einstöku umhverfi. Tilgangurinn er að verkja athygli á afleiðingum hlýnunar jarðar.
Smellið á myndirnar og sjáið þær stærri.