Sú hugsun að gott sé að breyta klukkunni svo bjartara verði fyrr á daginn er skiljanleg. Hugsunin gengur þó frekar skammt. Í dag er birtutíminn rétt rúmar fimm klukkustundir. Hann lengist ekki við það að breyta klukkunni.
Margir óska sér að bjartara verði fyrr á daginn, það er í dag verði sólarupprás kl. 9:37 í stað 10:37.
Afleiðingin verður þá einfaldlega sú að síðdegis skellur myrkrið fyrr á, það er rétt rúmlega klukkan þrjú í stað um fjögur.
Auðvitað eru þeir til sem vilja frekar bjartari morgna en dagurinn verður því miður ekkert lengri þó við breytum klukkunni. Í dag höfum við aðeins þessar fimm klukkustundir til ráðstöfunar og myndum við breyta henni þannig að sólarupprás verði klukkan átta þá er bara komið myrkur klukkan tvö.
Í sannleika sagt skiptir einn klukkutími til eða frá að morgni dags sáralitlu nema að því leiti að myrkrið verður fyrr á ferðinni síðdegis.
Fólk sem telur skammdegið ógna sálarheill sinni verður einfaldlega að finna aðrar leiðir til að takast á við vanda sinn heldur en að krefjast breytingar á klukkunni.
Enn er tæpur mánuður til 21. desember og myrkrið sækir á. Eftir það eru aðeins þrír mánuðir í jafndægur. Þannig hefur það verið æði lengi, lengur en elstu menn muna.