Svokallaður aðgerðarhópurinn Anonymous telst vera pólitískur sértrúarhópur sem hefur umfangsmikla sérþekkingu á tölvutækni og internetinu. Hann er eins og önnur glæpasamtök, mafían, Daesh eða Isis í heimi íslamista. Hópurinn telur hefndina vera sína af því að hann hefur tæknikunnáttu til að beita henni.
Mafían kúgar þá sem henni sýnist með hótunum, ofbeldi, skemmdarverkum og jafnvel drápum.
Eflaust getur Anonymous réttlætt gerðir sínar en þetta eru einfaldlega ofbeldissamtök sem ráðast á þá sem pólitísk löngun þeirra beinist að. Tilgangurinn er að skaða, valda truflunum og skemma. Þetta er mafíustarfsemi, hryðjuverkasamtök
Ekki frekar en íslamistar virðir Anonymous fullveldi þjóða, sjálfsákvörðunarrétt þeirra eða hagsmuni. Íslensk stjórnvöld hafa leyft hvalveiðar með vissum skilyrðum. Ég er ósammála þessum veiðum, en stjórnskipulag okkar byggist á lýðræðislegum hefðum og rödd mín má sín lítils á móti meirihlutanum og því sætti ég mig við niðurstöðuna þó enn sé ég á annarri skoðun.
Daesh, Al Kaida og álíka samtök sendir ungt fólk til að drepa annað í ríkjum sem teljast til heiðingja og fullyrða um leið að dráp á öðru fólki sé spámanninum Múhameð þóknanleg og jafnvel réttlætt í hinni heilögu bók Kórarninum. Milljónir manna sömu trúar mótmæla þessu og benda á rök í Kóraninum sem eru eru algjörlega á móti manndrápi.
Anonymous sendir fólk til hermdarverka rétt eins og mafían og Daesh. Öll þessi þrjú glæpasamtök reyna hvað þau geta til að fela nöfn sín og komast því upp með að valsa um frjáls lönd og valda skaða og eyðileggingu og sum þeirra drepa fólk. Fjöldi fólks með þekkingu á tölvutækni og interneti eru á móti aðgerðum Anonymous.
Fæstir halda því fram að allir þeir sem búa yfir umfangsmikilli tölvuþekkingu séu sjálfkrafa glæpamenn eins og Anonymous.
Þeir eru engu að síður til sem telja alla Íslamstrúar sjálfkrafa vera hryðjuverkamenn og morðingja.