Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnvöld hafi í dag búið til „þykjustumynd sem sýni gríðarháar fjárhæðir í stöðugleikaframlag, með því að telja til framlaga hluti sem eru ekki framlög í nokkrum skilningi.“
Þetta kemur fram í stöðufærslu á Facebook-síðu Árna Páls sem telur að með þeirri leið sem verið sé að fara við skuldaskil föllnu bankanna – að veita þeim undanþágu frá höftum að uppfylltum ýmsum stöðugleikaskilyrðum – sé verið að „gefa erlendum kröfuhöfum hundruði milljarða í afslátt af stöðugleikaskatti.
Þetta er endursögn dv.is af skoðun Árna Páls Árnasonar, þingmanni og fyrrverandi ráðherra í vinstristjórn Jóhönnu og Steingríms. Honum ferst rétt eins og Birni hvíta Kaðalsyni sem frá segir í Njálu en hann þótti frekar grobbinn og lítt til stórræða.
"Svo mun þér reynast," sagði Björn, "að eg mun ekki vera hjátækur í vitsmunum eigi síður en í harðræðunum."
Þannig er nú með þá stjórnvitringa sem skipuðu lið vinstri stjórnarinnar að núna þykjast þeir eiga hugmyndir og frumkvæði og geta gert allt miklu betur en allir aðrir. Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hefur unnið í tvö ár að vandamálum sem vinstri stjórnin skapaði og loksins er komin lausn þá standa þessir menn upp og hafa allt á hornum sér. Segjast geta gert miklu betur.
Í dálknum Skjóðan í Fréttablaðinu í dag segir:
Þeir félagarnir [Steingrímur J. Sigfússon og Gylfi Magnússon] afhentu kröfuhöfum á þriðja hundrað milljarða með beinum gjafagjörningi á kostnað viðskiptavina bankanna tveggja. Síðan hefur skotleyfið skilað þessum bönkum um 50 milljarða hagnaði á ári hverju. Nú hefur slitastjórn Glitnis boðið gjöfina sem meginhluta af sínu stöðugleikaframlagi, bankann sem byggir verðmæti sitt á herför gegn viðskiptavinum sínum og eigum þeirra.
Hví fór ríkið ekki sömu leið með Arion banka og Íslandsbanka og farin var með Landsbankann? Hví voru fyrrnefndu bankarnir gefnir slitabúum ásamt skotleyfi á viðskiptavini í stað þess að gefið væri út skuldabréf milli nýja bankans og þess gamla (í krónum en ekki gjaldeyri!) líkt og gert var með Landsbankann?
Ekki verður séð að ráðherrarnir hafi haft umboð til að gefa eigur ríkisins og út frá nýlegu dómafordæmi Hæstaréttar getur vart leikið vafi á að um umboðssvik var að ræða. Raunar verður ekki betur séð en að þessi umboðssvik Steingríms J. og Gylfa gegn þjóðinni hafi verið mun alvarlegri en þau umboðssvik sem verið er að dæma menn í margra ára fangelsi fyrir í ýmsum hrunmálum.
Þetta er sá sami Steingrímur og ætlaði að keyra í gegn um Alþingi óséðan samning í Icesave-deilu Íslands við Bretland og Holland – samning sem hefði kostað þjóðina 200 milljarða hið minnsta. Já, ekki skorti ráðherrann örlæti gagnvart kröfuhöfum, jafnvel þegar um ólögvarðar kröfur var að ræða.
En nú lýsir hann áhyggjum sínum yfir fjárhæð stöðugleikaframlagsins, ráðherrann sem vildi gefa erlendum kröfuhöfum á fimmta hundrað milljarða þó að þjóðin hafi raunar náð að takmarka tjónið með því að hafna með öllu Icesave-samningum.
Er hægt að taka nokkurt mark á þeim sem klúðruðu bönkunum í hendur útlendinga. Eru þeir bestu mennirnir til að gagnrýna aðgerðir núverandi ríkisstjórnar? Ef til vill, en rökin þessara manna eru hvorki góð né traustvekjandi. Tími Árna Páls, Steingríms og Gylfa er liðinn ... sem betur fer.