Setjum nú sem svo að Sjálfstæðisflokkurinn væri í meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Ímyndum okkur jafnframt að fulltrúar hans myndu segja si svo:
Á mörgum stöðum í borginni eru leikskólar, skólar og frístundaheimili á sama blettinum og kannski ekki hagkvæmt að vera með fullbúin eldhús að framleiða mat á öllum þessum stöðum.
Allir vita að um leið og þessi tillaga er lögð fram munu koma hávær mótmæli frá Samfylkingunni, Vinstri grænum, Bjartri framtíð og Pírötum, en þetta er einmitt fjórflokkurinn hinn eini og sanni, sá sem í raunveruleikanum myndar meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Og forkólfar hans munu segja eitthvað á þessa leið:
Dagur B. Eggertsson, Samfylkingu: Hér er enn og aftur verið að vildarvinavæða rekstur borgarinnar og nú hjá þeim sem minnst mega sín, börnunum í leik- og grunnskólum.
Sóley Tómasdóttir, Vinstri græn: Einkavæðing í mat fyrir leikskóla og grunnskóla borgarinnar mun hafa ófyrirséðar afleiðingar á heilsufari barna.
Björn Blöndal, Björt framtíð: Við mótmælum einkavæðingunni vegna þess að hún mun bitna á börnunum.
Halldór Auðar Svansson, Pírötum: Hér er ekki verið að hugsa um börnin, bara fjármál borgarinnar.
Í kjölfarið mun svo fylgja fjölmiðlafár af besta tagi; viðtöl við þessi fjögur, viðtöl við næringafræðinga, skólastjórnendur í nágrannalöndunum, presta, félagafræðinga, sálfræðinga, stjórnmálafræðinga, foreldra af réttu tagi og fleiri og fleiri gáfumenni sem öll munu með fjölbreyttum rökum leggjast gegn einkavæðingu á mat fyrir leikskóla og grunnskóla í Reykjavík. Gott ef Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, muni ekki blanda sér í umræðuna með háværum hætti eins og honum er best lagið.
Látum nú sögunni lokið og tökum á raunveruleikanum.
Í Fréttablaðinu í dag er forsíðufrétt og er fyrirsögnin þessi: „Skoða útvistun og sameiningu mötuneyta“. Í henni kemur fram að spara megi allt að hálfan milljarð króna sé þjónustan boðin út.
Til að óbreytt almúgafólk skilji ofangreint er nauðsynlegt að taka það fram að orðið „útvistun“ er snyrtilegt og huggulegt orð fyrir einkavæðingu.
Formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur er samfylkingarmaðurinn Skúli Helgason. Í frétt blaðsins segir:
Á mörgum stöðum í borginni eru leikskólar, skólar og frístundaheimili á sama blettinum og kannski ekki hagkvæmt að vera með fullbúin eldhús að framleiða mat á öllum þessum stöðum.“ Skúli bætir við að einnig sé erfitt að sumum stöðum að manna stöður í mötuneytunum og sameining eða útvistun gæti verið lausn á þeim vanda.
Hér er komið að rúsínunni í pylsuendanum. Þrátt fyrir forsíðufrétt í Fréttablaðinu um hugmyndir um einkavæðingu á þjónustu borg er engin umræða um hana. Hávær þögn í þeim stjórnmálaflokkum og fylgjendum þeirra sem í dag fordæma hugsanlega ríkisvæðingu Íslandsbanka.
Þögn.